Jarþrúður Hulda, Marinó Máni og Sigrún Sól
20.01.2008 23:00:00 / litlubaunirnar

Gleðilegt ár

Eins og þið tókuð kannski eftir þá voru ekki send jólakort á þessu heimili þetta árið eða síðasta eða þar áður. Ég held að það sé rétt hjá mér að við höfum ekki sent jólakort síðan Sigrún Sól var 3 mánaða.:haha:

Ég ætla að kenna manninum mínum um það þetta árið. Hann sagðist ætla að redda þessu og það varð ekki neitt úr því.

Þannig að ég er búin að lofa sjálfri mér því að það verða pönntuð jólakort í sumar svo það verði nú eitthvað úr þessu næstu jól.

En gleðileg jól og nýtt ár til ykkar allra.

Annars áttum við mjög róleg og góð jól. Það var reyndar mikill sökknuður í alla á Íslandi en til móts kom að Magga var með strákana svo það var þó eitthvað. Við borðuðum einmitt saman á gamalárskvöld og ég held að drengirnir og Jarþrúður hafi jafnvel verið meira spennt yfir því en aðfangadagskvöldinu. Sigrún er mjög hrædd við flugelda enn sem komið er, sem betur fer.

Börnin og við fengum alveg óendanlegt magn í jólagjöf í ár. Og þau voru ekkert smá ánægð. En þar sem við keyptum jólagjafir til barnanna frá nokkrum ættingjum þá var sú ákvörðun tekin að kaupa helst ekki leikföng nema okkur væri skipað að gera það. Við erum orðin svolítið þreytt á að þau leiki sér með þetta í 2 daga og síðan er það búið. Þau voru svo ánægð með þetta allt saman að ég held að þetta verði bara endurtekið.

Ég tók eftir því á 2. í nýárinu að Marinó var með brunagat á úlpunni sinni og þá fór ég nú og tékkaði á flíspeysunni hans og taldi 13 brunagöt. Ég held að þessi skotgleði komi úr föðurfjölskyldunni þetta kemur allavegana ekki frá móðurinni. Hún myndi helst vilja læsa þau og sig inni og horfa á þetta allt út um gluggann. Sem væri lokaður. Vel.

Af okkur er allt gott að frétta. Nóg að gera hjá börnunum og Atla. Atli var bara búinn snemma í prófunum í ár þann 11. janúar. Síðan er hann bara búinn að vera á fullu í vinnunni síðan.

Jæja nenni ekki meiru það er komin nótt.

Góða nótt.:)

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 22:31:54 / litlubaunirnar

jólin koma jólin koma

Jæja er þetta ekki fínt að heyra frá okkur á mánaðarfresti:lol:

Allt fínt að frétta eins og venjulega af okkur. Bara alveg brjálað að gera. Jarþrúður Hulda er á fullu í blaki á mánudögum, skátadóti og dansi á þriðjudögum. Marinó er í skátunum og dansi með stóru systur og litla dýrið fylgir með í þetta allt. Við erum í því að kveikja á kertum í Kongens Have hérna rétt hjá okkur á þriðjudögum, miðvikudögum og sunnudögum fram að jólum. Við tökum reyndar ekki þátt í þessu á þorláksmessu heldur á aðfangadag í staðinn;) aðeins að eyða tímanum.

Við vorum að hjálpa Jóhönnu og Valdimar að flytja í gær. Og það virðist ekki skipta máli hvað er borið á borð þar það er alltaf allt mikið betra en heima hjá manni sjálfum. Enda voru allir orðnir svolítið lágir þegar heim var komið í gærkvöldi.

Jæja ég get ekki skrifað meira fluttningarnir segja aðeins til sín í dag;)

kyss kyss til ykkar allra:cry:


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 10:25:50 / litlubaunirnar

myndir

Ég var að setja inn myndir frá því í sumar. En ég hreinlega nenni ekki að setja fleiri inn í augnablikinu svo þið bara látið ykkur nægja þetta í bili.


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 08:51:17 / litlubaunirnar

Langt síðan

Jæja hvernig finnst ykkur ganga hjá mér að skrifa fréttir af okkur? He he.

Best að skrifa um það sem er búið að gerast hjá okkur seinasta mánuðinn. Marinó átti auðvitað 8 ára afmæli þann 7. október. Hann eyddi deginum hjá vini sínum í stað fjölskyldunnar (ég veit ekki hvort það sé verið að reyna að benda okkur á eitthvað. Við héldum uppá afmælið hans fyrir bekkinn helgina eftir það. Svo átti Atli auðviðtað 32 ára afmæli þann 11. október og ég eldaði alveg dýrindis mat handa honum svo ég segi sjálf frá:haha:. Svo kom að mér þann 22. október 30 ára gömul takk fyrir. Ég er mikið búin að hugsa um það hvað mér fannst fólk um þrítugt gamalt fyrir um 10-12 árum síðan. Ég ákvað deginn fyrir afmælið að halda smá veislu fyrir okkar nánustu vini hérna og ætli það hafi ekki verið um 25 manns allavegana með börnum og alles. Það var samt svolítið leiðinlegt hvað allir gátu stoppað stutt af því að þetta var á mánudegi:(. Ég fékk fullt af pökkum sem mér finnst alveg afskaplega gaman eins og fjölskylda mín getur staðfest.

Svo áttu auðvitað alveg ótrúlega margir ættingar, vinir og nágrannar afmæli í október. Það eru svo margir að ég nenni ekki að telja þá upp.

Við erum ennþá símalaus:klikk::klikk::cry: ég er að brjálast!!!!!

Annars hættum við Atli að reykja fyrir 8 dögum síðan svo nú getur hún tengdamóðir mín hætt að tuða í okkur um að við ættum að hætt og einbeitt sér að sjálfri sér;).

Allt gengur sinn vanagang hjá okkur. Krakkarnir á fullu i skólanum og FDF (einhvers konar skátar eða eitthvað í þá áttina), Sigrún Sól alveg að fíla sig á leikskólanum og Alti í skólanum. Ég er heima eins og venjulega og er ekki alveg eins og ég á að mér að vera ennþá svona reyklaus og svoleiðis.

Ég verð nú að segja ykkur að Magga kom í gær með litlu rúsínuna hana Júlíu í heimsókn. Þar sem ég er frekar litlu barna sjúk þá tók ég auðvitað barnið, og hún varð bráluð og grenjaði vel og lengi yfir þessu skrímsli sem tók hana frá mömmu sinni. 

Við fórum líka í mat til Valdimars og Jóhönnu í tilefni 5 ára afmælis Helga Gnýs þann 12. nóvember. Fengum alveg æðislegan mat, enda ekki við öðru að búast og sátum svo og horfðum á börnin rústa öðru heimili en okkar. Það var mjög ánægjulegt;).

Annars, lifið vel og lengi og ég veit ekkert hvenær ég nenni þessu næst. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 19:21:22 / litlubaunirnar

Ööö

Jæja þá er komið helgarfrí enn og aftur.

Foreldra eintakið var hjá geðlækni í dag í sambandi við Marinó Mána. Það kom svo sem ekki mikið út úr því nema að hann er sennilega mjög líkur henni móður sinni í skapinu, því miður. Ásamt því að hafa erft stóra skapið hjá báðum foreldrum. Svo var lika komið inn á að þar sem hann er mjög hlíðinn í skólanum þá gæti verið að hann væri búinn að byrgja svo mikið inni þegar hann kemur heim að það sé látið bitna á okkur. Vei....

Ég kom við hjá Jóhönnu og Valdimar í smá heimsókn,  ein í fyrsta skiptið síðan þau fluttu til Dk. Þar heyrið þið hvað ég er rosalega dugleg að gera eitthvað.

Annars var nammidagur hjá börnunum (og foreldrum:haha:) í dag. Allir komu heim með STÓRA poka og ekki voru foreldrarnir betri. 

Það er nú ekki mikið á stefnuskránni þessa helgina. En við sjáum til hvað gerist. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 14:37:39 / litlubaunirnar

Símaleysi

ég er að bilast. Við erum búin að vera að vesenast með að reyna að fá okkur smart síma síðan við komum hingað aftur og það er ekkert að ganga. Þetta átti allt að komast í lag á afmælisdaginn hennar Sigrúnar og það hefur bara versnað. Við gátum þó hringt þótt það væri ekki hægt að hringja í okkur og nú virkar ekkert. Urr.

Annars er allt gott að frétta. Afmælisveislur hjá okkur um helgar er næstum orðin venja. Búið að redda Jarþrúði Huldu. Sigrún Sól er búin og þá er bara Marinó Máni eftir. Ótrúlegt að litla barnið mitt sé orðið 3 ára hvað þá að ég eigi næstum 8 og 9 ára gömul börn. Mér sem finnst ég alltaf svo mikið barn.:D:D

Jæja allt að fyllast af fjölskyldu.

Bæjó. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 12:40:22 / litlubaunirnar

Við erum ekki alveg horfin

Jæja þá erum við komin aftur til Dk. Við fórum frá Íslandi kvöldið 14. ágúst og komum til Odense um morguninn þann 15.

Annars vorum við að eignast litla frænku í gær 22. ágúst. Hún heitir Júlía Pálmadóttir og er algjör gullmoli hún er svooo falleg. Hún var reyndar mjög þrjósk og lét bíða eftir sér í 12 daga og lét mömmu sína hafa svolítið fyrir fæðingunni en ég held að það sé búið að fyrirgefa henni.

Krökkunum leið alveg afskaplega vel á Íslandi. Sigrún Sól spurði fljótlega eftir að við komum heim hvort við ættum ekki að fara núna í sveitina (ca. 1 mín eftir að hún kom heim) og er búin að spyrja ágætlega oft að því. Ég held reyndar að Jarþrúður Hulda og Marinó Máni hafi ekki verið neitt ósátt við að koma heim allavegana þá lá þeim mikið á að hitta vinina.

Það var alveg afskaplega erfitt að fara frá Íslandi núna. Við vorum í um 6 vikur á endanum þar sem hann elskulegur afi minn tók upp á að deyja. Ég var samt að mörgu leyti sátt að hafa fengið að hitta hann og spjalla áður en hann fór. Þetta var bara aðeins of snöggt, ég bjóst ekki við þessu. Enda er amma greyið ekkert voðalega heilsuhraust eftir þetta alltsaman.

Okkur gengur ekkert voðalega vel að koma reglu á börnin eftir ferðina og Sigrún Sól kunni ekki að tala dönsku þegar hún kom aftur. En ég held að það sé allt að koma hjá henni.

Jæja nenni ekki meiru.

bæjó


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 05:56:44 / litlubaunirnar

Fullt hús af fólki

Jæja þá eru mamma og þær allar komin og það er búið að fara í eina búðarferð. Ég held að það hafi átt að stilla klukkuna hérna í morgun svo það verði mætt um kl. 10 í búðir. Við gerðum ekkert í gær nema að versla í matinn og lenda í þvílíkri rigningu.

Sigrún Sól er ekki alveg að fatta hvernig maður notar ömmur en hún fékk nú að halda á henni og lesa fyrir hana í fyrsta skiptið í gær.

Jarþrúður Hulda og Marinó Máni voru nú ekkert voðalega sátt við að fara í skólann í morgunn. Þeir frændur eru búnir að vera svolítið duglegir saman.

Jæja það er best að reyna að vekja litla barnið og koma henni á leikskóla.

TATA


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 21:40:02 / litlubaunirnar

Get ekki

Svo heitt. Fórum í friluftsbaðið (útisundlaugar), 31 stig þegar við fórum heim. Get ekki skrifað.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 21:43:04 / litlubaunirnar

Svo heitt.....

Ég kíkti á barn á miðvikudaginn og hann var æðislega yndislegur og ég fékk ekki að stela honum. Þetta var slæmt ég get svo svarið það að það voru ekki bara eggjahljóð heldur var galað líka.:D

Marinó Máni datt niður tröppur í skólanum í gær og marðist svolítið illa á bakinu svo mamma náði snemma í hann í skólan og svo gerðist kraftaverk þegar hann kom heim. Hann gat farið að leika sér með látum.

Annars er bara búið að vera ógeðslega heitt 26+ og enginn að halda það út vel. Sigrún Sól er reyndar komin með kvef og hefur verið að kvarta yfir eyrunum í dag. Svo það verður spennandi hvernig helgin verður.

Annars er skógarferð með bekknum hans Marinós á morgunn. Ég var einmitt að baka köku til að taka með. Segi ykkur meira frá því á morgun.

Knús og kossar frá okkur öllum.

Ps. Það er vika og ég er að fríka út...


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 07:18:32 / litlubaunirnar

Kristrún vinkona búin að eiga

Jæja loksins kom stráksi hjá Kristrúnu. Það tók aðeins 30 tíma..... Hann vildi bara ekki koma og var tekinn með keisara kl. 20.12 í gærkvöldi. 3690 g og 50 cm. Ég er að fara að kíkja á hann á eftir og mér skilst að hann líkist þeim báðum. Enn allavegana þá heilsast þeim báðum vel. Atli Rafn kom til okkar í pössun á mánudaginn og hann var orðinn svolítið óþolinnmóður að bíða eftir honum bróður sínum. Svo varð hann voða glaður í morgunn þegar Erik færði honum fréttirnar.

Grillveislan á mánudaginn tókst bara vel fyrir utan að pulsubrauðin, tómatsósan og remúlaðið gleymdist. Jarþrúður Hulda fann frosk og var með hann allt kvöldið og varð síðan ekkert voðalega sátt þegar móðir hennar vildi ekki leyfa henni að taka hann með heim sem gæludýr.

Jæja ég ætla að fara að kíkja á barn:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 12:36:50 / litlubaunirnar

Mikið að gera á stóru heimili....

Það er hreinlega búið að vera svo mikið að gera hjá okkur að ég hef ekki gefið mér tíma til að setjast niður og skrifa.

Á miðvikudaginn komu portnerarnir (viðgerðarmenn kollegisins) og tóku allar eldhússkáphurðarnar okkar til að láta smíða nýjar eða gera við þær gömlu, ég veit það ekki alveg hvernig það endar. Svo nú búum við mjög minimalistiskt eins og einhverjum varð að orði sem kom í heimsókn.

Þá fórum við Jóhanna líka og létum dekra við okkur og það var óendanlega æðislegt og við ætlum að reyna að endurtaka það fyrir september. Það eru nefninlega 2 íslenskar núna niður í skóla. Ein sem er að klára í september og eins sem klárar hálfu ári eftir það.

Á fimmtudaginn var brjálað að gera við að vaxa og plokka og lita og dúlla sér aðeins með einhverja aðra og það hélt bara áfram á föstudeginum.

Laugardagurinn fór í að baka þar sem Jarþrúður Hulda og Marinó Máni voru með í kökukeppni á Markaðsdegi í skólanum. Þau unnu nú ekki þar sem þetta virðist vera meira keppni á milli foreldra en barna og þessi foreldri lét börnin um að skreyta. En ég held að þeim hafi verið alveg sama. Þar var borðað og horft á skemmtiatriði í 4 tíma. Börnin stóðu sig með prýði við að syngja (MM) og dansa (JH).

Á sunnudeginum fengum við Atla Rafn í heimsókn í nokkra tíma svo krakkarnir voru bara að leika úti í góða veðrinu meiri partinn af tímanum. Og mamma var svo dugleg og bakaði pönnukökur handa þeim til að borða úti.

Jarþrúður Hulda og Júlía vinkona hennar settu upp bás úti í garði þar sem þær voru að flétta garn í hárið á þeim sem vildu. Það komu nú nokkrir viðskiptavinir til þeirra.

Nú er bara verið að taka til fyrir grillveislu með leikskólanum hennar Sigrúnar Sólar sem fer fram nú seinnipartinn í dag. Það er mjög gott veður en það lítur út fyrir að það gæti komið rigning seinna. Í fyrra lentum við í rigningu, þrumum og eldingum og það gæti gerst í dag líka. Krökkunum finnst æðislegt að fara þangað. Þetta er afgirtur gamall eplauppskerugarður þar sem við komum saman og grillum, borðum ís og kökur og krakkarnir sína listaverk og þessháttar sem þau hafa gert undanfarið.

Jæja þetta er orðið ágætt í bili.

11 dagar í múttu og þær systur mínar og auðvitað má ekki gleyma Adam og Mæju ömmu. Vei..... 


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 07:49:43 / litlubaunirnar

Rigning í dag

Halló halló

Það er búið að vera óvenju mikið að gera hjá okkur um helgina.

Á laugardaginn fórum við upp í Rosengardcenter sem er verslunarmiðstöð hérna í Odense með krakkana. Marinó Máni er búinn að vera að suða svo lengi um að fara þangað að við létum undan á endanum. Við Jarþrúður Hulda skelltum okkur auðvitað í Pandura hobbybúðina og ég held hreinlega að hún hafi verið verri en ég, hún fann svo rosalega margt sem hana langaði í.

Svo á sunnudaginn var farið í Tivoli þar sem það var komið í bæinn. Við eigum 3 tívolíóð börn. Mamman sat með þá yngstu í einhverjum rússíbana að deyja úr lofthræðslu á meðan litla barnið sat þarna með bros á vör. Það er allavegana ekki hægt að segja að hún sé hrædd við svona þótt hún sé skíthrædd við dýr og ljót fólk í sjónvarpinu. Marinó vildi ekki hætta, hann vildi bara meira og meira og fór grenjandi heim af því við létum hann stoppa. Maður veit aldrei með Jarþrúði Huldu hvort hún sé að skemmta sér eða ekki það er alltaf bara smá bros á henni í hverju tæki.

Í gær fórum við að heimsækja Kristrúnu og Atla Rafn. Jarþrúður Hulda hafði reyndar sofið hjá vinkonu sinni svo hún var ekki með og Atli Freyr var að gera ritgerð heima svo hann var ekki með. Ég var að hjálpa Kristrúnu að komast af stað aftur með prjónaskapinn, enda ekki seinna vænna. Það er von á krílinu á föstudaginn í næstu viku. Æ ég verð nú að segja það að ég hálfpartinn öfunda hana þar sem það er svona stutt eftir. Þau eru svo mikil æði svona lítil.

Svo voru allir komnir heim um kl. 20 í gærkvöldi. Óendanlega þreyttir eftir helgina, enda sváfum við yfir okkur í morgunn. Við vöknuðum ekki fyrr en um hálf 9 leytið svo lítið slæmt enn þetta gerist víst.

Jæju kveðjum í bili úr ringingunni hérna.


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 11:21:09 / litlubaunirnar

Eitthvað að hressast

Allt á fullu á þessu heimili eins og venjulega. Ég er búin að lita og plokka 2 í dag og er að bíða eftir þeirri 3. Pensilínið sem ég fékk við bronkíttisinu er eitthvað að virka en samt of hægt að mínu mati eins og við er að búast.

Annars erum við bara farin að telja niður í heimsóknirnar. Mamma og co koma þann 15. júní og það er mikið hlakkað til. Krakkarnir bíða auðvitað spenntust eftir að Adam komi og Sigrún Sól er ekki alveg sátt við að hún "Lena mín" komi ekki með. Svo koma tengdó sennilega viku áður er við förum heim, og verða kannski samferða okkur heim. En það á allt eftir að koma í ljós þegar nær dregur.

Það er allt gott af börnunum að frétta. Jarþrúður Hulda og Marinó Máni eru einmitt í sínum seinasta íslenskutíma í dag og síðan eru þau komin í sumarfrí frá íslenskunni. Sigrún Sól er með fóstrunum sínum þeim Gitte og Nine á leikskólanum örugglega að ganga á einhveju skrítnu.

Svo er bara beðið eftir dekri með Jóhönnu á miðvikudaginn eftir 6 daga. Þá ætlum við að fara í gamla skólann minn og aðeins að láta sheina okkur. Vei....

Kyss kyss til ykkar allra frá okkur öllum.8) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 14:51:32 / litlubaunirnar

djamm í gær

Haldið þið að mín hafi ekki bara verið dregin á djammið í gær, það gerist svona á hálfs árs fresti eða svo.

Heiða vinkona hennar mömmu hringdi í hana um 5 leytið í gær og sagðist vera komin eftir 

klukkutíma. Þá var víst einhver ullarpeysu, áfengis hittingur hjá Íslendingafélaginu. Og þar sem 

þessi fjölskylda er svo voðalega dugleg í Íslengdingfélaginu (farið 3 á eitthvað á seinustu 7 árum, 

með gærkvöldinu), þá ákvað hún að skella sér (pabbi reyndar rak hana út, hann sagði að hún væri búin að vera svo ógeðslega leiðinleg í 3 vikur að hún skyldi endilega fara) og skemmti sér auðvitað mjög vel. En æfingaleysi í að innbyrða eitthvað sterkara en gos olli því 

að hún var komin heim til sín fyrir kl. 23 og eyddi svo smá tíma á privatinu við að losa sig við 

þennan óþverra úr líkamanum aftur. En þetta var mjög gaman og verður sennilega bara 

endurtekið innan hálfs árs aftur..;)

Krakkarnir fóru með pabba sínum á McDonalds að borða kvöldmat og tóku síðan mynd til að 

horfa á um kvöldið. Svo það var nú ekkert svo leiðinlegt að vera án mömmu. 

Pabbi fór síðan að vinna kl 7 í morgun og skildi mömmu eftir svooo hressa á sófanum með litla 

rassinn kúrandi. Sigrúnu tókst síðan að vekja hana móður sína upp úr kl. 9. Síðan fór bara 

kvenkynið á heimilinu í sturtu. Við erum nefninlega svo heppin að vera með tvöfalda sturtu 

svo þetta er ekkert mál.

Pabbi kom síðan heim eftir vinnuna með kleinuhringi í hádegismat, við erum alveg gífurlega 

heilsusamleg um helgar í matnum. Hí hí.

Jæju kveðjum í bili, bæjó 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill